fimmtudagur, desember 01, 2005

9 dagar í litla molann, Naný og Dadda töff..

Ohhh hvað við hlökkum mikið til.. Það er verið að skipuleggja þennan líka fína julefrokost hérna fyrir þotuliðið.. Var búin að lofa því ef Daði myndi standa við það að koma út.. Svo verður Daddinn auðvitað sendur í bæinn með aðal djömmurunum hérna. Það þarf víst að fara að kynna hann fyrir einhverjum fleiri stöðum en Hverfisbarnum..

Annars búið að vera frekar rólegt síðan ég kom heim.. Það er reyndar ein kerling í vinnunni sem er að gera mig vitlausa.. Þvílík dramadrottning sem tekst að gera vandamál úr öllu og ég sem þoli ekki vesen er ekki að meika þetta.. Svo tekur hún bara köst inn á milli, þvílíkur geðklofi þarna á ferð.. Byrjar bara allt í einu að garga á okkur og hefur meira að segja tekið kast á foreldra barna..

Fór að horfa á Viktoríu á sundnámskeiðinu í gær og það var þvílík stollt móðir sem yfirgaf sundhöllina.. Við erum að tala um að barnið er meira að segja farin að hoppa út í laugina.. Erna frænka á nú eftir að lesa þetta 5 x áður en hún trúir þessu..

Á morgun verður svo farið í jólagjafaleiðangur en þetta gengur bara rosa vel.. Á ekki svo mikið eftir..

Verð að fara að gúffa..
Hrabba

Comments:
Jeij, hvað ég er montin af frænku minni. Vonandi hittumst við eitthvað í jólafríinu svo að við getum farið í sund saman og þau frændsystkin geti hoppað öll saman:-)
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?