mánudagur, apríl 25, 2005

OSTAKAKA KOBBU... NAMMI NAMM...


Ostakaka Kobbu

300 gr kanilkex (frá LU) og 150gr smjör (brætt) hrært saman og sett i botninn

300gr rjómaostur og 5 msk flórsykur og 2 pelar þeyttur rjómi hrært saman og látið ofaná

200gr brætt suðusúkkulaði og ein dós (200gr) sýrður rjómi hrært saman og verður ljósbrúnt krem og það sett ofaná !!

Svo inn í frysti og tekin út 2 tímum áður en á ad borða kökuna!!

Ávöxtum raðað á hana rétt áður en hún er borin fram!!

Comments:
Ég heimta að þessi verði höfð á borðum næst þegar ég kem. Ásamt Bounty kökunni að sjálfsögðu;)
Kv orri
 
Orri minn allt fyrir þig.. Farðu nú bara að panta farið svo ég geti farið að gera plön..
 
Ummmmm hún var sko BARA ÆÐI... en viltu líka senda mér uppskriftina af hinu gúmmelaðinu.....

Annars held ég að Daddi sé kominn með matarást á ykkur, hann var ekkert sérlega glaður þegar ég bauð upp á hollustuna í gær!! hehe

kveðja Tinna
 
Hei,,,,líst líka vel á þessa Bounty köku ;)
Hils Tinna
 
umm þessi hljómar vel...stefnan sett á að skella í eina strax í kvöld :) held ég hafi bara gert ostaköku 2-var síðan ég átti Lúkas en gerði að minnsta kosti 2 á viku þegar ég var ólétt og át þær allar ein :) ef þig vantar uppskrift af fleiri ostakökum luma ég á nokkrum ómótstæðilegum.
eibba
 
namm mig langar í uppskriftina af bounty kökunni...
plís syst koddu með hana!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?