mánudagur, október 17, 2005

Allt að gerast hjá Döggunni.

Já stefnir allt í að ég verði móðursystir í dag.. Jíbbí.. Gunnar sendi sms áðan og líður honum mjög vel, skrítið, en Daggan var eitthvað aðeins að kvarta undan magaverkjum.. Hún er sem sagt komin upp á spítala og allt að gerast.. Ég er alveg viss um að það kemur lítill strákur í heiminn í dag (og aldrei hef ég nú vitlaust fyrir mér í þessum efnum...einmitt).

Skrifa seinna í dag eða í kvöld þegar eitthvað verður búið að gerast..

Kveðja
Hrabba móðursystir

Comments:
Baráttukveðjur frá klakanum.. .. .. .. go Deggs.. .. Kv. Bryn & bumban.. ..
 
you go girl.... gangi þér vel :-) ...og mundu andardráttinn hehe
 
Mússí mússí...bara allt að gerast.
Ég held að litla stelpan verði komin um 7 hálf átta leytið í kvöld,en Drífa segir kl.6
Smá veðmál í gangi.
Ég bara hálf öfunda þig Dagný, ekki af verkjunum reyndar en því sem kemur á eftir ; )
Vona innilega að allt gangi vel.
Kveðja,Þórdís og Eikin litla
 
Jeminn einasti...Matta meðvirka er með gæsahúð af spenningi!
Fylgist vel með héðan frá landinu kalda og sendi baráttukveðjur
 
Ogg koma svo Dagný, baráttu kveðjur frá Grossó og auðvitað kossar og knús :)
 
Míns er ekkert smá spennt uss ég held að þetta sé stúlkubarn en það kemur í ljós innan skamms hehe gangi þér vel Dagga mín ég er með þér í anda...........
kveðja Johnný
 
Áfram Áfram Dagný og Gunnar...
Þetta verður lítill Eyjagrislingur... ,o)
kveðja Tinna og co.
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?